Sjáðu þegar KA missti heimavallarréttinn
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Í síðasta þætti Handboltahallarinnar sem sýnd er öll mánudagskvöld í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans var farið yfir ótrúlegar lokasekúndur í grannaslag Þórs og KA í lokaumferð Olís-deildar karla sem fram fór í síðustu viku.

Brynjar Hólm Grétarsson jafnaði metin fyrir Þór nokkrum sekúndum fyrir leikslok en Þórsarar voru sjö í sókn með engan í marki.

KA menn höfðu örfáar sekúndur til að skora sigurmarkið en nýttu sér það ekki nægilega vel þrátt fyrir að mark Þórs hafi verið tómt. Úrslitin þýddi það að KA endaði í 5.sæti í Olís-deildinni og byrja keppni í 8-liða úrslitum á útivelli gegn ÍBV en sigur hefði fært þá upp fyrir ÍBV og liðið hefði endað í 4.sætinu.

Hægt er að sjá atvikið og umfjöllun Handboltahallarinnar um leikinn hér að neðan.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top