Alþjóðahandknattleikssambandið, International Handball Federation (IHF), skrifar nýjan kafla í handboltasögunni árið 2026 þegar fyrsta heimsmeistaramót kvenna í U16 fer fram. Mótið verður haldið dagana 15.–24. október 2026, en enn á eftir að staðfesta hvar það fer fram. Þetta er stórt skref í þróun kvennahandboltans þar sem keppnisstig IHF nær nú niður í yngsta aldursflokkinn. Með þessu bætist U16 HM við núverandi mótakerfi sambandsins, þar sem fyrir eru HM U20 og U18. Nýja mótið fylgir í kjölfar fyrsta HM U17 karla sem haldið var í Marokkó á síðasta ári og þótti takast afar vel. Á því móti voru innleiddar sérstakar reglur sem áttu að stuðla að hraðari, opnari og skemmtilegri handbolta og verður sama fyrirkomulag notað á U16 HM kvenna. Reglurnar sem verða notaðar eru skýrar og miða að því að styðja við þróun leikmanna: Þá verður einnig spilað með harpix lausan bolta, líkt og á U17 HM karla 2025, sem fékk góða dóma frá leikmönnum, þjálfurum og dómurum. Alls munu 12 lið taka þátt á fyrsta mótinu, frá sex heimsálfum. Handkastið veit ekki betur en að U16 ára landsliðs Íslands kvenna taki þátt á opna Evrópumótinu í Gautaborg í sumar þar sem tvö efstu lið keppninnar vinna sér inn þátttökurétt á Heimsmeistaramótinu 15.-24. október.Byggir á vel heppnuðu móti karla
Sérstakar reglur í gildi
12 lið taka þátt
Asíumót U16 fer fram í Astana í Kasakstan 7.–16. maí 2026, þar sem tvö efstu lið tryggja sér sæti.
Undankeppnin fer fram á W16 European Open í Gautaborg í Svíþjóð 29. júní – 3. júlí 2026. Tvö efstu lið fara áfram og er stefnt að því að mótið verði áfram fastur undankeppnisvettvangur Evrópu.
Undankeppni verður haldin í Mexíkó þar sem tvö lið komast áfram.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.