Lokaumferðin í Grill66-deild karla fór fram á laugardaginn en þrátt fyrir það eru enn þremur leikjum ólokið í deildinni. HK 2 og Hvíti riddarinn leika lokaleik sinn í deildinni í Kórnum í kvöld. HBH, venslalið ÍBV á meðal annars eftir að spila tvo leiki á tímabilinu en vegna veðurskilyrða þurfti að fresta leik HBH og Harðar frá Ísafirði í lokaumferðinni um helgina. Harðverjar munu taka þátt í umspilinu um laust sæti í Olís-deildinni. Ekki er hinsvegar enn ljóst í hvaða sæti Hörður endar í deildinni en liðið getur með sigri farið upp fyrir Fjölni og haft þá áhrif á það hvaða lið Hörður mætir í undanúrslitum umspilsins. Fjölnir er með 23 stig í 5.sætinu en Hörður er stigi á eftir með 22 stig. Geri Hörður jafntefli gegn HBH nægir það liðinu ekki að fara upp fyrir Fjölni í töflunni. Grótta og Stjarnan eru því enn í dag, ekki nema sex dögum áður en umspilið á að hefjast að bíða eftir því hvort liðið það mætir í umspilinu en umspilið á að hefjast á þriðjudaginn í næstu viku. Stjarnan mætir annað hvort Fjölni eða Herði en liðið mætir liðinu sem endar neðar í töflunni á meðan Grótta sem endaði í 2.sæti Grill66-deildarinnar mætir því liði sem endar ofar í töflunni. Leik HBH og ÍH á að fara fram á laugardaginn en líklegt þykir að mótanefnd HSÍ fresti þeim leik og reyni frekar að leika leik HBH og Harðar um helgina. Vonskuveður er hinsvegar í kortunum og telja veðursérfræðingar ólíklegt að hægt verði að leika í Vestmannaeyjum um helgina. Ólafur Víðir Ólafsson starfsmaður mótanefndar sagði í samtali við Handkastið í morgun að málið væri á borði mótanefndar og það myndi liggja fyrir tillaga frá mótanefndinni síðar í dag hvenær leikur HBH og Harðar færi fram og þá hvort að seinka þyrfti fyrstu umferðinni í umspilinu. Veðurspáin setur lokaumferðin í Olís-deild kvenna einnig í uppnám en lokaumferðin í Olís-deildinni fer fram á laugardaginn klukkan 14:00.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.