Einn leikmaður byrjar í banni í úrslitakeppninni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Úrslitakeppnin í Olís-deild karla hefst í næstu viku þegar 8-liða úrslitin hefjast eftir landsleikjapásu.

Ljóst er að einn leikmaður byrjar úrslitakeppnina í banni en Stefán Magni Hjartarson leikmaður Aftureldingar sem mætir Haukum verður í banni í fyrsta leik liðanna sem fer fram á fimmtudaginn í næstu viku.

Úrskurður aganefndar var svohljóðandi:

Stefán Magni Hjartarson leikmaður Aftureldingar hlaut útilokun með skýrslu vegna sérstaklega hættulegrar aðgerðar í leik Selfoss og Afturelding í Olís deild karla þann 12.03.2026. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:6 a). Með tilvísun í 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann. Aganefnd vekur athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 1. mgr. 11. sömu reglugerðar.

Oddur Gretarsson leikmaður Þórs hlaut einnig rautt spjald vegna grófrar ódrenilegrar hegðunar í leik Þórs og KA í síðustu viku. Hann slapp hinsvegar við leikbann og getur því leikið í 1.umferð Olís-deildarinnar á næstu leiktíð.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top