Alfa Brá hefur samið við þýskt lið
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, leikmaður Fram og íslenska landsliðsins hefur gengið í raðir þýska úrvalsdeildarfélagsins Thuringer. Þetta tilkynnti félagið nú rétt í þessu.

Alfa Brá hefur því leikið sinn síðasta leik fyrir Fram í bili en hún glímir við meiðsli og leikur ekki meira með Fram á þessu tímabili. Alfa Brá er uppalin í HK en gekk ung að árum til liðs við Fram og hefur leikið með liðinu í Olís-deild kvenna undanfarin ár.

,,Ég er ótrúlega spennt að ganga til liðs við Thüringer HC. Þetta er metnaðarfullt og virt félag og ég tel að þetta sé fullkominn staður fyrir mig. Ég hlakka til þessa nýja kafla og að gefa allt mitt fyrir liðið,“ sagði Alfa Brà Oddsdóttir Hagalin um félagaskipti sín. Kærasti Ölfu er Reynir Þór Stefánsson sem leikur með MT Melsungen í þýsku úrvalsdeildinni.

Þjálfari liðsins, Herbert Müller er himinlifandi og segir að með komu Ölfu sé leikmannahópur liðsins fyrir næstu leiktíð klár. Hann segir að Alfa komi inn sem sterkur varnarmaður og frammistaða hennar með íslenska landsliðinu á heimsmeistaramótinu hafi hrifið hann.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top