Það var ekki nóg með að Elliði Snær Viðarsson hafi endað sem markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins í tveggja marka tapi gegn Svíþjóð í fyrri vináttulandsleik þjóðanna í Valsheimilinu í gær þá gaf hann einnig þrjár stoðsendingar. Tvær af þremur stoðsendingum hans í leiknum voru af dýrari gerðinni en í fyrra skiptið gaf hann stoðsendingu á Orra Frey Þorkelsson og í seinni hálfleik gaf hann síðan keimlíka stoðsendingu á Sigvalda Björn Guðjónsson í hægra horninu. RÚV tók saman stoðsendingarnar og birti á samfélagsmiðlum sínum eftir leikinn í gær. Það verður áhugavert að sjá hvort Elliði Snær geri slíkt hið sama í Kaplakrika á morgun þegar þjóðirnar mætast í annað sinn eða hvort Svíarnir verði búnir að leikgreina þessar stoðsendingar og komi í vegfyrir að Elliði nái að leika sama leik aftur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.