Janus Daði glímir enn við meiðsli – Verður ekki með á morgun
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari íslenska karla landsliðsins staðfesti í samtali við Handkastið að Janus Daði Smárason verði ekki með íslenska landsliðinu í seinni vináttulandsleik Íslands gegn Svíþjóð sem fer fram í Kaplakrika á morgun.

Janus Daði var ekki í leikmannahópi Íslands í fyrri vináttulandsleiknum sem fór fram í gærkvöldi en Íslanda tapaði þeim leik 33-35 eftir að staðan hafi verið jöfn í hálfleik 19-19.

Janus Daði meiddist illa á öxl í úrslitahelginni á Evrópumótinu í byrjun febrúar. Hann var hinsvegar kominn aftur af stað með félagsliði sínu Pick Szeged.

,,Ég hef tekið ákvörðun um að hann verði ekki með á laugardaginn. Hann hefur ekki æft mikið að undanförnu og mér finnst engin ástæða til að taka einhverja sénsa. Hann er að glíma við axlarmeiðsli og þarf pásu," sagði Snorri Steinn.

Aðspurður út í meiðslin, þar sem Janus Daði var farinn að spila með Pick Szeged í aðdraganda landsliðsverkefnsins. Var þetta eitthvað bakslag eða hvað?

,,Beggja blands. Ég ætla nú ekki að fara of djúpt í það hvað gerðist hjá Pick Szeged en þeir voru í stöðu þar sem þeir þurftu að vinna leiki og það er einhver leikur þar sem hann spilar of mikið í og þá kemur bakslag. Einhversstaðar verður hann að fá pásu og ég ákvað að gefa honum pásu."

Umræddur leikur þar sem Janus Daði spilaði of mikið í, var tapleikur gegn Paris Saint Germain í lok febrúar en PSG vann leikinn 29-28. Janus Daði skoraði tvö mörk í leiknum og gaf sjö stoðsendingar. Hann skoraði síðan sjö mörk í tapi liðsins gegn GOG í upphafi mars mánaðar en lék ekki með liðinu í jafntefli gegn Wisla Plock í lokaumferð riðlakeppninnar.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top