Handknattleiksdeild Vals hefur framlengt samninga við þrjá, af sínum efnilegustu leikmönnum. Allir gera þeir tveggja ára samning við Val sem gildir til ársins 2028. Um er að ræða unglingalandsliðsmennina Dag Leó Fannarsson, Daníel Montoro og Jens Sigurðarson sem allir hafa verið í hlutverki hjá karlaliði Vals í Olís-deild karla á þessari leiktíð. ,,Dagur Leó Fannarsson hefur leikið stórt hlutverk í miðju varnarinnar í vetur ásamt því að hafa brugðið sér á miðju eða í skyttu öðru hvoru í sókninni með góðum árangri," segir í tilkynningunni frá Val. ,,Daníel Montoro, sem er örvhentur hornamaður, hefur leikið afar vel og skorað mörg mörk í öllum regnbogans litum, jafnt úr horni sem og hraðaupphlaupum." ,,Jens Sigurðarson hefur komið sterkur inn í vetur og nýtt sín tækifæri vel í markinu ásamt því að mynda sterkt teymi með markvörðum liðsins." Allir eru þeir leikmenn U21 árs landsliðs Íslands sem tekur þátt í lokakeppni EM í sumar en þjálfari U21 árs landsliðs Ísland er Ágúst Jóhannsson þjálfari Vals. ,,Það eru frábærar fréttir að þessir strákar verði áfram með okkur. Þeirra hlutverk mun stækka jafnt og þétt á komandi árum enda mjög efnilegir leikmenn sem hafa staðið sig frábærlega það sem af er tímabilinu," sagði Ágúst Jóhannsson þjálfari Vals. Valur mætir aftur til leiks þegar úrslitakeppnin hefst í næstu viku en deildarmeistarar Vals taka á móti HK í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.