Besti leikmaður Olís-deildarinnar, Bjarni Ófeigur Valdimarsson hefur framlengt samningi sínum við KA til næstu tveggja ára. Bjarni Ófeigur er á sínu öðru tímabili hjá KA en eldri samningur hans við félagið rann út sumarið 2027. Bjarni nýtti sér uppsagnarákvæði í samningi sínum í vetur og sagði upp sínum samningi og var því laus allra mála eftir tímabilið. Handkastið greindi frá því á dögunum að samningaviðræður milli KA og Bjarna Ófeigs hafi dregist á langinn en það er eins og margt annað að máttur Handkastsins eru óútreiknanlegur því stuttu eftir að fréttin birtist virðast KA og Bjarni Ófeigur hafa náð samkomulagi og hefur Bjarnii skrifað undir samning til gildir til sumarsins 2028. Hvar spilar Bjarni Ófeigur á næstu leiktíð? Hann var í Cell-tech liði tímabilsins hér á Handkastinu en hann var langbesti leikmaður Olís-deildarinnar fyrir áramót. Meiðsli hafa síðan sett strik í reikninginn hjá honum eftir áramót en framundan er 8-liða úrslit Íslandsmótsins þar sem KA mætir ÍBV. Bjarni Ófeigur lék í Svíþjóð og í Þýskalandi áður en hann gekk í raðir KA fyrir síðustu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.