Gísli framlengir við Aftureldingu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Leikstjórnandinn, Gísli Rúnar Jóhannsson hefur framlengt samningi sínum við Handknattleiksdeild Aftureldingar næstu tvö árin. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum um helgina.

Gísli Rúnar hefur verið að koma til baka eftir erfið meiðsli og hefur verið í lykilhlutverki með venslaliði Aftureldingar, Hvíta riddaranum í Grill66-deildinni að undanförnu. Hann hefur meðal annars skorað 42 mörk í síðustu fjórum leikjum liðsins.

,,Gísli hefur verið hjá Aftureldingu í 3 ár og við eigum von á því að hann muni vera í mikilvægu hlutverki hjá liðinu á komandi árum. Auk þess er Gísli mjög efnilegur þjálfari og hefur verið að þjálfa í yngri flokkum félagsins við góðan orðstír og mun hann halda því hlutverki áfram.  Gísli er frábær félagsmaður og fyrirmynd innan og utanvallar og við erum gríðarlega ánægð og stolt af því að Gísli sér framtíðina í Mosó," segir í tilkynningunni frá Aftureldingu.

Gísli Rúnar lék á síðustu leiktíð á láni með Fjölni í Olís-deild karla.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top