Fyrrum handboltaþjálfarinn og Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson hefur tekið að sér enn eitt ráðgjafastarfið og mun nú leiðbeina þjálfurum í norsku afreksmiðstöðinni. Þórir fer í þrjátíu prósent starf hjá afreksmiðstöð innan norska Íþrótta- og Ólympíusambandsins sem ber heitið Olympiatoppen. Þar mun hann starfa náið með þjálfurum og veita þeim góð ráð. Þórir er sigursælasti þjálfari í sögu norska kvennahandboltans. Hann stýrði landsliði Noregs á tuttugu stórmótum frá 2009-24 og vann sextán sinnum til verðlauna og þar af voru ellefu gullverðlaun. Síðan Þórir hætti þjálfun hefur hann unnið sem ráðgjafi. Hann er í þrjátíu prósent starfi sem ráðgjafi hjá Handknattleikssambandi Íslands, tuttugu prósent starfi sem ráðgjafi Handknattleikssambandi Noregs og núna kominn í þrjátíu prósent starf hjá afreksmiðstöð Noregs. Auk þess rekur hann sitt eigið ráðgjafafyrirtæki. Þegar hann tók að fyrst sér starfið hjá HSÍ vorið 2025 Þórir að hann myndi gefa sig hundrað prósent í þetta þrjátíu prósent starf. Nú er ljóst að umsvifin munu aukast enn meira hjá þessum afar geðþekka Selfyssing.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.