Mosfellingurinn Katrín Helga Davíðsdóttir er markadrottning Grill 66 deildar kvenna tímabilið 2025-2026. Katrín Helga leikur sem skytta/leikstjórnandi hjá Aftureldingu og hefur farið hamförum í markaskorun á tímabilinu. Hún er fædd árið 2001 og er alin upp hjá félaginu og hefur leikið alla tíð með sínu uppeldisfélagi. Hefur hún sýnt mikla hollustu fyrir sitt heimafélag. Endaði Katrín Helga með 204 mörk í 21 leik sem gerir 9,7 mörk að meðaltali í hverjum leik sem verður að teljast býsna vel gert. Mest skoraði hún 16 mörk í einum leik. Það hlýtur að vera mikið kappsmál hjá Aftureldingu að halda þessari öflugu handboltakonu áfram innan sinna raða hjá félaginu fyrir næsta tímabil. Afturelding endaði í 7. sæti af 8 liðum í deildinni þetta tímabilið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.