Örfhenta skyttan og Fjölnismaðurinn Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson er markakóngur Grill 66 deildar karla tímabilið 2025-2026. Aðalsteinn lék 21 leik með Fjölni í vetur og skoraði 161 mörk sem gerir rúm 7,7 mörk að meðaltali í leik. Aðalsteinn er fæddur 1998 og er alinn upp hjá félaginu. Hefur hann að mestu leikið með sínu uppeldisfélagi ef undanskilin eru 2 ár þar sem hann var á mála hjá Stjörnunni. Það hlýtur að vera mikið kappsmál hjá Fjölni að halda honum áfram innan sinna raða fyrir næsta keppnistímabil. Fjölnir endaði í 6. sæti deildarinnar af 12 liðum og fer áfram í umspilið sem hefst á næstunni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.