HK hefur fengið til liðs við sig örvhenta hornamanninn Alex Mána Oddnýjarson sem gengur í raðir félagsins í sumar frá uppeldisfélagi sínu, Fjölni. ,,Alex Máni er metnaðarfullur leikmaður sem kemur til með að styrkja hópinn. Innan félagsins er mikil ánægja með komu hans og bindum við miklar vonir við að hann á næstu misserum. Við hlökkum til að starfa með Alex Mána í Kórnum og fylgjast með honum vaxa og dafna í HK búningnum," segir í tilkynningunni frá HK. Alex Máni skoraði 57 mörk í 19 leikjum fyrir Fjölni í Grill66-deildinni í vetur en Fjölnir endaði í 6.sæti deildarinnar. Liðið féll úr Olís-deildinni á síðustu leiktíð þar sem Alex Máni skoraði 60 mörk fyrir Fjölni í Olís-deild karla á síðustu leiktíð. Tímabilinu hjá HK er ekki lokið en liðið leikur í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins gegn Val á miðvikudagskvöldið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.