Áfall fyrir KA – Giorgi ekki meira með
{{brizy_dc_image_alt entityId=

KA hefur orðið fyrir miklu áfalli rétt fyrir úrslitakeppnina en hægri hornamaður þeirra, Giorgi Dikhaminjia meiddist í landsleik með Georgíu í síðustu viku gegn Ísrael í undankeppni heimsmeistaramótsins.

Andri Snær Stefánsson þjálfari KA sagði í samtali við Handkastið að það væri nokkuð ljóst að tímabili Giorgi væri lokið og hann myndi ekki leika meira með KA á þessu tímabili. Um er að ræða hrikalega slæmar fréttir fyrir KA sem hafa orðið fyrir skakkaföllum undanfarnar vikur.

Bjarni Ófeigur Valdimarsson þeirra lang besti leikmaður á tímabilinu hefur glímt við meiðsli á fingri síðustu vikur og þá fór Morten Boe Linder úr axlarlið í leik liðsins í febrúar. Þá greindi Handkastið frá því í þessum mánuði að Daði Jónsson hafi slitið hásin á æfingu og yrði ekkert meira með liðinu á tímabilinu.

Giorgi Dikhaminjia gekk í raðir KA frá Póllandi fyrir tímabilið og hefur skorað 109 mörk fyrir liðið í Olís-deildinni en KA endaði í 5.sæti Olís-deildarinnar og mætir ÍBV í 8-liða úrslitum. Giorgi var næst markahæsti leikmaður KA á tímabilinu á eftir Bjarna Ófeig Valdimarssyni.

KA fer til Vestmannaeyja á morgun og mætir þar ÍBV í fyrsta leik 8-liða úrslitanna en sá leikur hefst klukkan 18:00. Klukkan 19:30 mætast síðan Valur og HK. 8-liða úrslitin halda síðan áfram á fimmtudag með tveimur leikjum. Haukar - Afturelding og FH - Fram.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top