Úrslitakeppnin í Olís-deild karla hefst á morgun þegar 8-liða úrslitin fara af stað með tveimur leikjum. Veðmálasíðan Coolbet hafa sett upp veðmál þar sem hægt er að veðja á hvaða lið verður Íslandsmeistari í vor. Þar eru deildarmeistarar Vals með lægsta stuðulinn eða 3 í stuðul. Bikarmeistarar Hauka koma næstir með 3,5 í stuðul og næst eru það FH með 5 í stuðul. HK sem koma inn í úrslitakeppnina sem 8. besta liðið eru taldir ólíklegastir til að verða Íslandsmeistarar á stuðlinum 100. Íslandsmeistarar Fram frá því á síðustu leiktíð eru á stuðlinum 12. Coolbet býður upp á töluvert magn af veðmálum nú í aðdraganda úrslitakeppninnar og greinilegt að áhuginn fyrir úrslitakeppninni hefur sjaldan verið meiri hjá starfsmönnum Coolbet. Leikir í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins: Miðvikudagur: Fimmtudagur: Hitað var upp fyrir úrslitakeppnina í nýjasta þætti Handkastsins sem hægt er að nálgast á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
18:00 ÍBV - KA
19:30 Valur - HK
18:00 Haukar - Afturelding
19:30 FH - Fram

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.