Töluverð umræða hefur verið hér á landi um mótafyrirkomulag í efstu tveimur deildum karla og kvenna. Umræða hefur verið uppi um að breyta úrslitakeppninni og fara svokallaða ,,dönsku leið" þar sem átta efstu liðunum yrði skipt í tvo fjögurra liða riðla þar sem tvö efstu lið hvers riðils kæmust í undanúrslit. Þá hefur verið umræða um að fjölga liðum í Olís-deild kvenna úr átta í tíu. Allar breytingar þurfa að vera samþykktar á ársþingi HSÍ en ekki liggur enn ljóst fyrir hvenær ársþing HSÍ fer fram. Danska úrvalsdeildin hefur verið leiðandi í því að vera opin fyrir því að breyta um mótafyrirkomulag og það verður engin breyting þar á fyrir næstu leiktíð. Hafa Danirnir ákveðið að innleiða nýtt fyrirkomulag fyrir neðstu sex lið deildarinnar þar sem ekkert lið fellur beint eftir deildarkeppnina. Breytingin tekur gildi frá og með næsta tímabili. Breytingin snýr fyrst og fremst að neðri hluta deildarinnar og er ætlað að auka spennu, samkeppni og vægi leikja undir lok deildarkeppni. Samkvæmt nýja kerfinu munu liðin sem enda í sætum 9 til 14 að lokinni deildarkeppni fara í sérstaka umspilskeppni um áframhaldandi sæti í efstu deild. Þau taka með sér öll þau stig sem þau hafa safnað í deildarkeppninni, sem þýðir að árangur vetrarins skiptir áfram miklu máli þegar kemur að úrslitum í fallbaráttunni. Í umspilskeppninni mætast öll liðin einu sinni, sem skapar þétt og afgerandi keppnisform þar sem hvert stig getur skipt sköpum. Með þessu móti vilja skipuleggjendur tryggja að fleiri lið hafi raunhæfan möguleika á að berjast fyrir sæti sínu langt fram á vor. Að keppninni lokinni fellur það lið sem endar í neðsta sæti beint niður í 1. deild. Liðið sem endar næstneðst fær hins vegar annað tækifæri til að halda sæti sínu, en það mætir liði úr 1. deild í sérstökum umspilsleikjum um sæti í efstu deild. Breytingin sem á sér stað er sú að neðsta liðið í dönsku úrvalsdeildinni hefur fallið beint eftir deildarkeppnina og þess í stað hefur umspilskeppnin því einungis verið fyrir liðin sem enduðu í 9. - 13.sæti. Markmið breytinganna er skýrt: Að auka spennu í leikjum sem áður gátu orðið þýðingarlitlir undir lok tímabils. Með því að halda fleiri liðum inni í baráttunni lengur er vonast til að bæði áhorf og áhugi aukist. Nýja fyrirkomulagið er hluti af stærri þróun í dönskum handbolta þar sem reynt er að fínstilla keppnisformið og gera það bæði sanngjarnara og meira aðlaðandi fyrir leikmenn, félög og áhorfendur. Þá hefur einnig verið ákveðið að breyta fyrirkomulaginu hvað varðar hvaða lið fara í hvaða riðil hjá átta efstu liðum deildarinnar en Danirnir hafa verið óhræddir við að breyta því. Riðill 1: Riðill 2: Þá hefur einnig verið ákveðið að breyta mótafyrirkomulaginu í 1.deildum karla og kvenna sem hefur undanfarin ár verið leikin í tvöfaldri umferð þar sem efsta liðið hefur unnið sér sæti í efstu deild og liðin fyrir neðan hafa farið í umspil um að komast í einvígi gegn næst neðsta liðinu í úrvalsdeildinni. Frá og með næsta tímabili verður hins vegar tekið upp sérstakt umspil. Í 1. deild kvenna fara liðin í 1.–4. sæti áfram í umspil, þar sem þau taka með sér stigin úr deildarkeppninni. Þar mætast öll lið heima og að heiman, sem þýðir að hvert lið spilar alls sex leiki í umspilinu. Að því loknu tryggir efsta liðið sér beinan aðgang í efstu deild, á meðan liðið í 2. sæti fær tækifæri til að komast upp um deild í gegnum umspilsleiki gegn næstneðsta liði úr fallumspili efstu deildar. Í 1. deild karla verða það liðin í 1.–6. sæti úr deildarkeppninni sem taka þátt í umspilinu. Þar verður fyrirkomulagið öðruvísi en í kvennadeildinni, þar sem einungis verður leikin einföld umferð. Það þýðir að sum lið fá þrjá heimaleiki á meðan önnur fá tvo. Efsta liðið eftir umspilið tryggir sér sæti í efstu deild á á meðan 2.sætið fer í hreinan úrslitaleik við næst neðsta sætið í úrvalsdeildinni. Þó að nýju fyrirkomulögin um fallumspil og umspil í 1.deildinni taki ekki gildi fyrr en á næsta tímabili, hafa þegar verið innleiddar breytingar sem hafa áhrif á úrslitakeppnina á yfirstandandi tímabili. Þar á meðal er að ekki verður lengur hægt að gera jafntefli í undanúrslitum og úrslitum, sem tryggir skýrari úrslit í hverjum leik og eykur spennu keppninnar. Nú veltir Handkastið fyrir sér hvort þetta sé eitthvað sem íslenskur handbolti ætti að skoða fyrir komandi keppnistímabil og hvort eitthvað félag tekur það á sig að kynna nýtt mótafyrirkomulag á ársþingi HSÍ.
1.sæti - 3.sæti - 6.sæti - 8.sæti
2.sæti - 4.sæti - 5.sæti - 7.sætiEinnig breyting í 1.deildunum
Engin jafntefli í undanúrslitum og úrslitum

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.