Lokaumferðin í sænsku kvennadeildinni fór fram í kvöld en þar var meðal annars Íslendingaslagur og einn leikur fór einnig fram í dönsku deildinni þar sem Ribe-Esbjerg unnu mikilvægan sigur. Deildarmeistararnir í Sävehof töpuðu á útivelli fyrir Skara, 30-32 en Lena Margrét Valdimarsdóttir komst ekki á blað fyrir Skara, klikkaði eina skotinu sínu og gaf eina stoðsendingu á meðan Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði sjö mörk úr níu skotum þar af fjögur úr vítum og bætti við einnig stoðsendingu. Eins og áður kom fram unnu Sävehof deildarmeistaratitilinn á meðan Skara endaði í þriðja sæti. Berta Rut Harðardóttir spilaði sinn seinasta leik fyrir Kristianstad þegar liðið lék lokaleik sinn á þessu tímabili en þær töpuðu fyrir Aranäs á útivelli, 25-31 en Berta Rut skoraði eitt mark úr sex skotum og gaf eina stoðsendingu. Kristianstad endar tímabilið í tíunda sæti. Í Danmörku halda Ribe-Esbjerg í smá von um að komast í úrslitakeppnina en þeir unnu dýrmætan sigur á Fredericia í kvöld, 31-26. Elvar Ásgeirsson var magnaður í kvöld en hann var besti maður vallarins með tólf mörk úr fimmtán skotum og gaf eina stoðsendingu að auki. Sigurinn þýðir að liðið er tveimur stigum á eftir Fredericia sem sitja í áttunda sætinu þegar ein umferð er eftir. Ribe-Esbjerg þurfa að vinna HØJ á útivelli í lokaleik sínum og þurfa vona að Fredericia tapi fyrir Mors-Thy á heimavelli á sama tíma. Úrslit kvöldsins: Skara 32-30 Sävehof Aranäs 25-31 Kristianstad Ribe-Esbjerg 31-26 Fredericia

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.