Stymmi Spáir í leiki dagsins
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi.

Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins

ÍBV - KA (Miðvikudag 18:00) / Sigurvegari: ÍBV

Liðin sem enduðu í fjórða og fimmta sæti Olís deildar karla svo þetta ætti að vera jafnt og spennandi einvígi. KA ná vonandi að koma sér til og frá Vestmannaeyjum milli lægða sem ganga yfir landið þessa dagana. Bæði lið hafa verið að glíma við meiðsli lykilmanna og voru fréttir í gær þess efnis að Giorgi Dikhaminjia yrði ekki meira með KA á tímabilinu eftir að hafa meiðst í landsliðsverkefni með Georgíu í síðust viku. ÍBV hafa einnig verið að glíma við meiðsli svo það verður spennandi að sjá að sjá hverjir verða heilir heilsu í kvöld. Ég held þetta envígi fari í oddaleik og að Eyjamenn eigi fyrsta höggið í kvöld og komist í 1-0 í einvíginu.

Valur - HK (Miðvikudag 19:30) / Sigurvegari: Valur

Deildarmeistararnir fá HK í heimsókn á Hlíðarenda í kvöld. Gengi liðanna var mjög ólíkt eins og gefur að skilja í vetur og hafa HK ekki náð að vinna Valsmenn síðan árið 2012. Styttist þá ekki alltaf í sigurinn kann einhver að spyrja sig. HK verða því miður að bíða lengur eftir fyrsta sigrinum þar sem Valsmenn munu vinna þennan leik fagmannlega. Efast um þetta verði eitthvað burst þar sem menn munu eflaust setja fókus á leik nr. 2 á sunnudaginn ef vel gengur í kvöld.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top