ÍBV án lykilmanna gegn KA
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Úrslitakeppnin í Olís-deild karla hefst eftir tæpar 40 mínútur þegar ÍBV og KA ríða á vaðið í fyrsta leik 8-liða úrslitanna í Vestmannaeyjum.

Þetta eru liðin sem enduðu í 4. og 5.sæti deildarinnar og búast má við hörkuleik. Síðar í kvöld fá síðan deildarmeistarar Vals lið HK í heimsókn.

Eyjamenn verða án lykilmanna í leiknum í kvöld en hvorki Andri Erlingsson né Hákon Daði Styrmisson eru í leikmannahópi ÍBV í kvöld. Þá er Ísak Rafnsson fjarverandi. Hinrik Hugi Heiðarsson snýr hinsvegar aftur ásamt Petar Jokanovic í markið.

Hjá KA þá snýr Norðmaðurinn, Morten Boe Linder aftur í leikmannahóp KA eftir að hafa farið úr axlarlið í deildarleik með KA í febrúar. Bjarni Ófeigur Valdimarsson er einnig í hópnum hjá KA en hann hefur verið að glíma við meiðsli undanfarnar vikur.

Handkastið hefur áður greint frá því:

Áfall fyrir KA - Giorgi ekki meira með

Daði leikur ekki meira með KA á tímabilinu

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top