Elín Klara kaup ársins – Of góð fyrir sænsku deildina
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Sænski handboltaspekingurinn, Ola Selby, blaðamaður hjá Handbollskanalen, hefur gefið út þrjú úrvalslið sænsku úrvalsdeildarinnar eftir að deildarkeppninni í Svíþjóð lauk. Savehof, lið Elínar Klöru Þorkelsdóttur varð sænskur deildarmeistari en Elin Klara gekk í raðir Savehof frá Haukum í sumar.

Í stað þess að velja eitt lið valdi Selby þrjú lið – Lið 1 (besta), lið 2 (næst besta) og lið 3 (þriðja besta). Elin Klara Þorkelsdóttir er í úrvalsliði 1 hjá Ola Selby fylgja stuttar umsagnir um hvern leikmann og þjálfara. 

,,Samkvæmt mér eru þetta kaup ársins, besta vinstri skyttan og og besti leikmaður deildarinnar," skrifar Ola Selby um Elínu Klöru.

,,Hún hefur verið næstum óstöðvandi í mörgum leikjum. Hvirfilvindur sem er of góð fyrir sænsku deildina," segir í skrifum Ola Selby.

Úrvalslið 1 að mati Ola Selby:

Markmaður: Emma Andersson (Skövde HF)
Vinstra horn: Melanie Felber (Skara HF)
Hægra horn: Clara Petersson Bergsten (Skuru IK)
Vinstri skytta: Elin Klara Porkelsdottir (IK Sävehof)  
Leikstjórnandi: Melissa Petrén (IF Hallby)
Hægri skytta: Kristina Zubonja (Kungälvs HK)
Línumaður: Stina Wiksfors (IK Sävehof)
Varnarmaður: Isabelle Rydén (Önnereds HK)

Þjálfari: Christian Håkansson (H65 Höör)

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top