Tómas Bragi gengur í raðir HK
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Tómas Bragi Lorriaux Starrason hefur ákveðið að ganga til liðs við HK frá og með næsta tímabili. Tómas Bragi gengur í raðir HK eftir eins árs dvöl hjá Gróttu í Grill66-deildinni en þar áður lék hann með Fjölni.

Tómas Bragi er línumaður og hefur verið í stóru hlutverki í liði Gróttu á þessari leiktíð en Grótta er á leið í umspil um laust sæti í Olís-deildinni á næstu leiktíð. Koma Tómasar Braga til HK ýtir undir þann orðróm að Sigurður Jefferson línumaður HK sé að ganga í raðir Hauka eins og Handkastið hafi greint frá.

Ljóst er að það heldur áfram að hvarfnast úr leikmannahópi Gróttu fyrir næstu leiktíð en Handkastið hefur áður tilkynnt að Antoine Óskar Pantano sé að ganga í raðir FH, Bessi Teitsson hefur verið orðaður við Val og Atli Steinn Arnarsson hefur verið orðaður við ÍBV

,,HK horfir á Tómas sem leikmann til framtíðar og bindur miklar vonir við framlag hans á komandi árum. Við hlökkum til að sjá Tómas í HK búningnum og fylgjast með honum vaxa og dafna í Kórnum," segir í tilkynningunni frá HK.

HK töpuðu í gær fyrsta leik sínum í 8-liða úrslitum gegn Val eftir framlengdan leik. Liðin mætast aftur á sunnudag.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top