Íslandsmeistarar Fram eru komnir með bakið upp við vegg eftir tap gegn FH í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins sem fram fór í Kaplakrika í kvöld. FH hafði betur með tveimur mörkum 28-26 . Rúnar Kárason, leikmaður Fram ræddi við Sjónvarp Símans eftir leik í Kaplakrika í kvöld. ,,Við fórum alveg hrikalega ílla með færin okkar og í rauninni gegnum gangandi í leiknum er hann að verja hrikalega vel hjá þeim og reyndar báðu megin í kvöld." ,,FH fann leiðina að markinu og skora við höldum áfram að klikka dauðafærum sem er bara dýrt í þessum leik." Næsti leikur er á mánudag þegar Fram fær FH í heimsókn upp í Úlfarsárdalinn og Rúnar segir Framara ætla kvitta strax fyrir tapið í kvöld á sínum eigin heimavelli. ,,Við þurfum að kvitta fyrir þessi skot og við ætlum að halda fast í þessa vörn sem gékk vel framan að í kvöld. Við höfum spilað mjög mikið af jöfnum einvígum við FH. Bæði í deildinni í vetur og síðasta vor og við stefnum ekki á neitt annað en sigur á mánudag." ,,

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.