Ætlum okkur langt og þetta var góð byrjun á því
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Íslandsmeistarar Fram eru komnir með bakið upp við vegg eftir tap gegn FH í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins sem fram fór í Kaplakrika í kvöld. FH hafði betur með tveimur mörkum 28-26 þar sem Jón Þórarinn Þorsteinsson markvörður FH fór á kostum í markinu og var besti leikmaður vallarins. Jón Þórarinn ræddi við Sjónvarp Símans eftir leik í kvöld.

,,Mér líður rosalega vel. Þetta var mjög góð frammistaða hjá liðinu í heild í dag og ég er bara mjög sáttur með frammistöðuna í heild."

,,Við töluðum um það í hálfleik að þétta vörnina enþá meira og að vera með Ágúst Birgisson og Ingvar þarna í vörninni er eitt besta þrista par sem ég veit um og vörnin í heild var frábær"

Leikur tvö fer fram á mánudag þegar Fram fær FH í heimsókn en staðan er 1-0 fyrir Fimleikafélaginu eftir leik eitt.

,,Við þurfum að vera tilbúnir, þetta var bara fyrsti leikur í úrslitakeppni, það er fullt eftir en planið er að fara eins langt og við getum og þetta var góð byrjun á því.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top