Enn ein frestunin hefur átt sér stað í umspilinu um laust sæti í Olís-deild karla þrátt fyrir að umspilið sé ekki enn farið af stað. Umspilið sem átti í raun að hefjast á þriðjudaginn var frestað til dagsins í dag þar sem deildarkeppnin í Grill66-deild karla lauk ekki á tilsettum tíma. Nú er hinsvegar ljóst að einum af tveimur leikjum kvöldsins í umspilinu um laust sæti í Grill66-deild karla fer ekki fram í kvöld eins og gert var ráð fyrir. Leik Gróttu og Harðar frá Ísafirði hefur verið frestað til sunnudags vegna ófærðar en leikurinn hefur verið settur á sunnudaginn klukkan 16:30. Það verður því Gróttu-tvenna á sunnudaginn því kvennalið Gróttu á leik gegn Víking í umspilinu kvennamegin klukkan 14:00 sama dag. Þar með er ljóst að einungis einn leikur verður á dagskrá í kvöld þegar Stjarnan tekur á móti Fjölni klukkan 19:30 í Heklu-höllinni. Leikir tvö í umspilinu eiga að fara fram á þriðjudag. HSÍ hefur í það minnsta ekki greint frá því hvort einhver breyting hafi verið gerð enn sem komið er og ljóst að eins og staðan er núna mun Grótta og Hörður leika tvívegis á þremur dögum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.