Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi. Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins ÍR - Fram (Laugardagur 14:00) / Sigurvegari: ÍR Fyrsti leikur liðanna í 6-liða úrslitum úrslitakeppninnar. Fram vann fyrstu tvo leiki liðanna í deildinni í vetur meðan ÍR vann leik liðanna í þriðju umferð. Bæði lið hafa verið að glíma við meiðsli svo það er spurning hverjar verða klárar í dag. Ég hallast að því að varnarleikur ÍR muni skila þessum sigri í dag og koma þeim 1-0 yfir í einvíginu. Valur - ÍBV (Laugardagur 15:00) / Sigurvegari: ÍBV Síðasti leikur deildarkeppninnar fer fram sama dag og úrslitakeppnin byrjar sökum ófærðar um síðustu helgi. Hafdís segist vera orðin klár að spila í marki Valskvenna og munar gífurlega mikið um það. Bikarinn fer á loft eftir leik og vilja Valsstelpur eflaust enda tímabilið með sigri en ÍBV eru fullfærar um að skemma það partý. Ég held ÍBV mæti grimmar til leiks og vilji ná einum sigri á Valskonum í vetur fyrir úrslitakeppnin og sjái tækifæri til þess í dag. Coolbet býður stuðulinn 2 á Eyjakonur sem mér finnst vera mjög spennandi. Haukar - KA/Þór (Laugardagur 17:30) / Sigurvegari: Haukar Haukar fá KA/Þór í heimsókn á Ásvelli. Haukar hafa verið í frábæru formi eftir áramót eftir hæga byrjun á mótinu. KA/Þór gerði gífurlegar vel að halda sæti sínu í deildinni eftir að hafa komið upp, hvað þá að fara alla leið í úrslitakeppnina. Ég held það þetta verkefni verið einfalt fyrir Hauka og þær minni með 5+ mörkum í dag.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.