Vörnin og andinn var til staðar – Stjörnumenn mæta dýrvitlausir í næsta leik
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Við heyrðum aðeins í Aðalsteini Erni Aðalsteinssyni, fyrirliða Fjölnis eftir frækinn sigur Grafarvogs liðsins í gær í Mýrinni í Garðabæ á móti Stjörnunni í undanúrslitum umspils.

Fjölnismenn unnu 23-24 í gær og eru komnir í 1-0 í einvíginu. Næsti leikur verður 31. mars kl. 19:30 í Egilshöll.

"Þetta var heilt yfir flottur leikur hjá okkur. Stjarnan eru með sterkt lið og við vissum að við þurftum allir að stíga upp. Sóknarleikurinn var kannski ekki upp á sitt besta en vörnin og andinn var til staðar allan tíman. Bergur var líka frábær, mikilvægir boltar. En við erum samt bara komnir í 1-0 og ég þekki vel til hjá Stjörnunni, þeir mæta dýrvitlausir. Við erum að fara í ótrúlega erfiðan leik á þriðjudag og það verður gaman að fá að takast aftur við þá aftur" sagði Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson fyrirliði Fjölnis og markahæsti leikmaður Grill 66 deildarinnar í vetur.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top