Halldór Stefán ráðinn framkvæmdarstjóri Ungmennafélag Selfoss
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Halldór Stefán Haraldsson var í gær ráðinn framkvæmdastjóri Ungmennafélag Selfoss.

Í tilkynningu frá félaginu kemur eftirfarandi fram.

"Halldór hefur starfað mest í kringum handknattleik frá því hann lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, árið 2010. Hann hefur m.a verið aðalþjálfari hjá Fylki og KA og einnig þjálfað hjá Volda í Noregi. Hann er lærður íþróttafræðingur og einnig er hann að ljúka námi í alþjóðaviðskiptum og verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands. Framkvæmdastjórn félagsins sá um ráðningarferlið og viðtöl við umsækjendur, sem lauk með ráðningu Halldórs. Framtíðarsýn hans og áhugi á eflingu félagsins, ekki síst innávið, féll vel að framtíðasýn framkvæmdastjórnar og býður hún Halldór velkomin til starfa hjá félaginu og væntir mikils af honum fyrir félagið"

Á mynd frá vinstri: Hermann Ólafsson framkvæmdastjórn UMFS, Helgi Sigurður Haraldsson formaður UMFS, Halldór Stefán Haraldsson framkvæmdastjóri UMFS og Brynhildur Jónsdóttir framkvæmdastjórn UMFS.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top