Ekkert grín að mæta norður
Skapti Hallgrímsson Akureyri.net

KA leiðir 1-0 í einvíginu gegn ÍBV í 8-liða úrslitum Íslandsmóts karla eftir sigur í tvíframlengdum leik í Vestmannaeyjum á miðvikudagskvöldið. Liðin mætast aftur í KA-heimilinu í dag klukkan 17:00.

Dagur Gautason leikmaður KA var í viðtali á samfélagsmiðlasíðu KA í aðdraganda leiksins þar sem hann segist vonast eftir að upplifa gríðarlega stemningu í KA-heimilinu og segir hvergi skemmtilegra að spila heldur en fyrir framan troðfulla stúku í KA-heimilinu.

,,Stemningin var ótrúlega góð og mikil eftirvænting í liðinu að byrja úrslitakeppnina og það var heldur betur byrjunin. Tvíframlengdur leikur fyrir framan troðfulla stúku í Vestmannaeyjum og mikil stemning. Við vorum mjög vel gíraðir og spenntir að byrja. Það var gott að byrja svona á alvöru leik."

,,Það er gullið tækifæri til að klára þetta núna og við búumst við troðfullu húsi eins og hefur verið í vetur. Það hefur sýnt sig í allan vetur að þegar húsið er fullt og góð stemning þá er ekkert grín að mæta norður," sagði Dagur.

Hann gekk í raðir KA eftir dvöl erlendis síðustu ár bæði í Noregi og Frakklandi, hann var spurður út í það hvernig það væri að vera loksins að spila í úrslitakeppninni með KA.

,,Það er yndislegt, ég held ég geti ekkert orðað það öðruvísi. Það eru forréttindi að spila í KA og ég tala nú ekki um KA-heimilið þegar það er fullt. Það gerist ekkert betra í handboltanum heldur en að spila fyrri framan troðfullt KA-heimili og maður hefur spilað á ýmsum stöðum í heiminum en það toppar ekkert KA-heimilið, sérstaklega þegar það er góð stemning. Ég held að það séu allir sammála því í KA að við ætlum að troðfylla stúkuna og klára þetta einvígi í dag,” sagði Dagur Gautason að lokum.

Hægt er að hlusta á nýjasta uppgjörsþátt Handkastsins á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top