Það var nóg um að vera í dag og í gærkvöldi á norðurlöndunum en Final Four í sænska bikarnum karla megin fer fram þessa helgina þar sem þrjú Íslendingalið voru í eldlínunni á meðan Elverum svo gott sem tryggði sér deildarmeistaratitilinn í Noregi. Við hefjum leik í Svíþjóð þegar Kristianstad mætti Karlskrona í Íslendingaslag. Kristianstad á möguleika á því að vinna annan titilinn sinn á nokkrum dögum en þeir kláruðu deildarmeistaratitilinn í vikunni. Karlskrona voru þó öflugri í fyrri hálfleiknum og leiddu með fimm mörkum, 23-18 í miklum markaleik. En Kristianstad sýndi mátt sinn í seinni hálfleiknum og unnu að lokum góðan tveggja marka sigur, 35-37. Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði tvö mörk úr fimm skotum fyrir Kristianstad á meðan Arnór Viðarsson skoraði þrjú mörk úr sex skotum. Markahæstur í liði Kristianstad var Axel Månsson sem við Íslendingar fengum að kynnast á dögunum þegar hann spilaði með sænska landsliðinu á Íslandi. Andstæðingar Kristianstad á morgun verða Ystad sem gamla goðsögnin Kim Andersson þjálfar en þeir unnu Arnar Birki Hálfdánsson og félaga í Amo, 34-30. Ystad vann einnig bikarinn í fyrra og í hitt í fyrra og geta því ennþá náð þriðja bikartitlinum í röð. Arnar Birkir skoraði tvö mörk úr fimm skotum fyrir Amo. Í Noregi eru Elverum orðnir svo gott sem deildarmeistarar en þeir unnu í gærkvöldi gríðarlega öruggan ellefu marka sigur á Sandnes, 35-24. Tryggvi Þórisson átti flottan leik fyrir liðið en hann skoraði fjögur mörk úr fjórum skotum. Pressan var á Kolstad fyrir leik þeirra gegn Drammen í dag en þeir þurftu að vinna til að minnka muninn niður í tvö stig þegar tvær umferðir eru eftir. Því miður tókst það ekki því gestirnir frá Drammen áttu flottan leik og tóku stigin tvö með sér, lokatölur 32-37. Ísak Steinsson stóð í marki gestanna um tíma og varði fjögur af þeim sautján skotum sem hann fékk á sig eða 24% markvarsla. Hjá heimamönnum skoraði Sigvaldi Björn Guðjónsson tvö mörk úr fjórum skotum, Benedikt Gunnar Óskarsson klikkaði eina skotinu sínu en gaf þó sjö stoðsendingar og að lokum fékk Sigurjón Guðmundsson tækifæri í markinu og varði fjögur af þeim fimmtán skotum sem hann fékk á sig eða 27% markvarsla og gaf tvær stoðsendingar að auki. Úrslit helgarinnar: Elverum 35-24 Sandnes Kolstad 32-37 Drammen Karlskrona 35-37 Kristianstad Ystad 34-30 Amo

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.