Seinasta umferðin í hefðbundinni deildarkeppni var spiluð í Danmörku í dag en Íslendingaliðin áttu misjöfnu gengi að fagna í dag. Ringsted átti smá möguleika á því að ná inn í topp8 sem fara í úrslitakeppni en þá þurftu þeir að vinna deildarmeistara Álaborgar á útivelli sem höfðu aðeins tapað einum leik á tímabilinu ásamt því að treysta á önnur úrslit. Því miður áttu gestirnir í Ringsted aldrei möguleika því Álaborg vann risasigur, 40-26. Guðmundur Bragi Ástþórsson skoraði fjögur mörk úr sjö skotum fyrir gestina og Ísak Gústafsson skoraði tvö mörk úr sex skotum. Ringsted endar deildarkeppnina í ellefta sæti og þarf því að fara í fall umspil. Annað lið sem átti möguleika á því að komast í topp8 voru Ribe-Esbjerg en þeir þurftu að vinna HØJ Elite á útivelli og treysta á tap hjá Fredericia. Gestirnir frá Esbjerg unnu frábæran sigur, 31-32 þar sem Elvar Ásgeirsson hélt áfram að fara mikinn en hann skoraði sex mörk úr níu skotum og gaf þrjár stoðsendingar að auki. Sigurinn dugði þó skammt þar sem Fredericia vann sinn leik og því sitja Ribe-Esbjerg eftir með sárt ennið og þurfa að fara í fall umspil rétt eins og Ringsted. Að lokum mættust TTH Holstebro og Skanderborg í Íslendingaslag en Skanderborg voru búnir að tryggja sér annað sætið í deildinni á meðan Holstebro gat ennþá náð fjórða sætinu. Liðin skildu jöfn í hörkuleik, 35-35 þar sem Jóhannes Berg Andrason skoraði eitt mark úr einu skoti á meðan Kristján Örn Kristjánsson skoraði eitt mark úr þremur skotum og gaf eina stoðsendingu fyrir gestina. Jafnteflið dugði fyrir Holstebro þar sem bæði Skjern og Mors-Thy töpuðu sínum leik. Öll liðin enda með jafnmörg stig en Holstebro voru með bestu úrslitin úr innbyrðisviðureignum. Úrslit dagsins: Aalborg 40-26 Ringsted HØJ Elite 31-32 Ribe-Esbjerg TTH Holstebro 35-35 Skanderborg

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.