Íslendingaliðið Magdeburg færðist einu skrefi nær að þýska meistaratitlinum með tveggja marka sigri á Füchse Berlin í kvöld. Magdeburg sigruðu leikinn 35-33 eftir að jafnt hafi verið í hálfleik 15-15. Fyrir leikinn höfðu liðsmenn Füchse Berlin unnið 9 leiki í röð. Magdeburg er núna með sjö stiga forskot á toppi deildarinnar en Flensburg er í öðru sæti þegar átta umferðir eru eftir. Gísli Þorgeir Kristjánsson átti frábæran leik með Magdeburg. Hann skoraði 6 mörk og átti 7 stoðsendingar. Ómar Ingi Magnússon var með þrjú mörk og tvær stoðsendingar. Elvar Örn Jónsson náði ekki að komast á blað en átti eina stoðsendingu auk þess að standa varnarleikinn vel eins og alltaf.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.