Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði þrjú mörk og gaf fjórar stoðsendingar í öruggum þrettán marka sigri Blomberg-Lippe gegn SV Union Halle-Neustadt, 33-20 á útivelli í gærkvöldi í næst síðustu umferð þýsku úrvalsdeildarinnar. Blomberg-Lippe hafði fjögurra marka forystu í hálfleik 13-17 en Íslendingaliðið var töluvert sterkari aðilinn í leiknum og vann lokakaflann í leiknum 8-2 og breytti stöðunni úr 28-25 í 20-33. Með sigrinum kom Blomberg-Lippe upp fyrir Borussia Dortmund sem á þó leik til góða á Blomberg Lippe fyrir lokaumferðina. Sama hvernig leikur Borussia Dortmung fer gegn Oldenburg á miðvikudaginn er ljóst að það verður úrslitaleikur um deildarmeistaratitilinn næstkomandi laugardag þegar Blomberg-Lippe tekur á móti Borussia Dortmund í lokaumferðinni. Andrea Jacobsen skoraði eitt mark fyrir þýska liðið en Díana Dögg Magnúsdóttir komst ekki á blað en gaf sex stoðsendingar. Það verður spennandi að sjá sigurinn í gær hjálpi Íslendingaliðinu að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í Þýskalandi áður en úrslitakeppnin hefst síðan um miðjan apríl.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.