Norðurlöndin: Kristianstad sænskur bikarmeistari
Raggi Óla

Kristianstad tók annan titil sinn á nokkrum dögum þegar liðið varð sænskur bikarmeistari eftir sigur á Ystad í Halmstad í dag. Liðið hefur því unnið báða stóru titlana en þeir urðu deildarmeistarar á dögunum.

En fyrst var það bronsleikurinn því fyrr um daginn mættust Karlskrona og Amo. Þar reyndust Amo sterkari aðilinn og unnu nauman sigur, 32-33. Íslendingarnir í báðum liðum áttu fínan leik en Arnór Viðarsson skoraði sex mörk fyrir Karlskrona á meðan Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði fimm fyrir Amo.

Seinni leikur dagsins var síðan stóri leikurinn um titilinn. Ystad átti möguleika að vinna þriðja árið í röð en Kristianstad voru í góðu formi og vildu sækja bikartitilinn einnig. Það var lítið um vörn og markvörslu í leiknum en staðan í hálfleik var vænleg fyrir Kristianstad sem leiddi með fimm mörkum, 23-18. Ystad reyndi að koma til baka í seinni hálfleik en það getur reynst þreytandi að elta og Kristianstad náði að lokum að klára leikinn og vinna bikarinn, lokatölur 40-37 í miklum markaleik. Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði tvö mörk fyrir Kristianstad en menn leiksins voru þeir Albin Nilsson Selin sem skoraði ellefu mörk og Axel Månsson sem skoraði tíu mörk.

Það skyldi þó aldrei vera að Kristianstad taki þrennuna í ár en úrslitakeppnin hefst á miðvikudaginn, 1.apríl.

Úrslit dagsins:

Karlskrona 32-33 Amo

Kristianstad 40-37 Ystad

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top