Við heyrðum aðeins í Portúgalanum Pedro Nunes þjálfara Harðar eftir frækinn sigur þeirra á móti Gróttu á Seltjarnarnesi í gær. Sigur þeirra kom mörgum á óvart. Áttu þeir frábæran endasprett í leiknum sem skóp sigurinn. "Leikurinn í gær var mjög erfiður. Allir vita um gæðin sem Grótta hefur og afhverju þeir voru mjög nálægt því að fara beint upp. En við erum í umspils úrslitakeppni þar sem allt getur gerst. En eins og ég segi að þá var þetta gríðarlega erfiður leikur þar sem mínir leikmenn gerðu mjög vel að klára leikinn. Síðustu 10 mínútur leiksins í vörninni voru algjörlega frábærar og við áttum meðal annars 8-0 kafla sem voru ótrúlegar mínútur og hjálpuðu okkur að vinna leikinn" Næsti leikur í einvíginu verður á Ísafirði miðvikudaginn 1. apríl kl. 19:00 í Íþróttahúsinu á Torfnesi.
"Ég er virkilega stoltur af mínum leikmönnum og liðinu og við munum halda áfram að selja okkur dýrt. Varðandi næsta leik að þá verður hann líka jafn erfiður og við vitum að Grótta mun leggja allt í sölurnar að vinna þann leik en við verðum klárir í slaginn, sérstaklega með góðum stuðningi bæjarbúa, og okkar markmið verður að komast í úrslitaeinvígið"

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.