HSÍ hefur forsölu miða á leiki Íslands á HM í dag
Johan Nilsson/TT / AFP

HSÍ mun klukkan 10:00 í dag hefja miðasölu á þeim miðum sem standa Íslendingum til boða fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári.

Eins og greint hefur verið frá síðustu daga er uppselt á alla leiki Íslands á mótinu, bæði í riðlakeppninni og í milliriðlunum en HSÍ sagði frá því í síðustu viku að Handknattleikssambandið hafi náð að taka frá miða á leiki Íslands í riðlakeppninni sem fer fram í Magdeburg og í milliriðlunum sem fara fram í Hannover.

Jón Halldórsson formaður HSÍ sagði í viðtali við Vísi í síðustu viku að um væri að ræða í kringum 5000 miðar í heildina á alla leikina. Um er að ræða í kringum 400-1500 miða á hvern leik. Höllin í Magdeburg er töluvert minni en höllin í Hannover og því er hægt að gera ráð fyrir að fleiri miðar séu í boði á leikina í milliriðlinum.

HSÍ sendi frá sér tilkynningu á Handkastið í morgun þar sem tilkynnt var að miðasalan færi fram á skrifstofu HSÍ í Laugardalnum og hefst klukkan 10:00 í dag. Þar segir jafnframt að einungis geti hver einstaklingur keypt fjóra miða á hvern leik en engin takmörkun er á því hversu marga leiki einn einstaklingur getur keypt miða á. Um er að ræða miða á leiki Íslands í riðlakeppni og milliriðla en ekki á úrslitahelgina sjálfa.

Leikdagar Íslands á HM:

Föstudagur 15.janúar - Leikur 1 í riðli - Magdeburg
Sunnudagur 17.janúar - Leikur 2 í riðli - Magdeburg
Þriðjudagur 19.janúar - Leikur 3 í riðli - Magdeburg

Fimmtudagur 21.janúar - Leikur 1 í milliriðli - Hanover
Laugardagur 23.janúar - Leikur 2 í milliriðli - Hanover
Mánudagur 25.janúar - Leikur 3 í milliriðli - Hanover

Í tilkynningunni frá HSÍ segir að um sé að ræða forsölu þar sem stuðningsmenn Íslands geta keypt einungis miða á leikina sjálfa en í næstu viku er gert ráð fyrir að HSÍ hefji sölu á pakkaferðum í samstarfi við Icelandair.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top