26. Umferð þýsku úrvalsdeildarinnar lauk í gær er þrír leikir fóru fram. Magdeburg situr á toppi deildarinnar með sjö stiga forskot á lið Flensburg sem situr í öðru sæti. Að vana gefur Daikin handball út lið umferðarinnar og lítur það svona út: Mike Jensen(Rhein-Neckar Löwen) Mike Jensen markvörður Rhein-Neckar Löwen átti góðan leik er lið hans vann stórsigur á liði Wetzlar. Jensen varði 15 skot sem samsvaraði 48,4% hlutfallsmarkvörslu. Mats Korte(Minden) Mats Korte átti góðan leik fyrir lið sitt Minden er þeir töpuðu gegn Flensburg. Korte skoraði 8 mörk úr 8 tilraunum í leiknum. Dominik Solak(Eisenach) Dominik Solak átti fínan leik er lið hans Eisenach gerði jafntefli við Blæ Hinriks og félaga í Leipzig. Solak skoraði 6 mörk auk þess að hafa gefið 5 stoðsendingar. Haukur Þrastarson(Rhein-Neckar Löwen) Haukur Þrastarson átti stórleik fyrir lið sitt Rhein-Neckar Löwen er þeir unnu stórsigur á liði Wetzlar. Haukur skoraði 15 mörk í leiknum auk þess að hafa gefið 8 stoðsendingar. Mathias Gidsel(Füchse Berlin) Mathias Gidsel átti góðan leik er lið hans Füchse Berlin tapaði gegn íslendingaliði Magdeburg. Mathias skoraði 11 mörk í leiknum auk þess að hafa gefið 3 stoðsendingar. Bence Imre(THW Kiel) Bence Imre átti góðan leik fyrir lið sitt Kiel er liðið tapaði óvænt gegn Melsungen. Bence skoraði 8 mörk auk þess að hafa gefið 1 stoðsendingu. Johannes Golla(Flensburg) Johannes Golla línumaður Flensburg átti góðan leik þegar lið hans vann Minden. Golla skoraði 9 mörk úr 9 tilraunum auk þess að hafa gefið 3 stoðsendingar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.