Arnór Atla vildi ekki tjá sig um orðróminn
JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP

Handkastið greindi frá því í morgun og í gærkvöldi í hlaðvarpsþætti sínum fyrst allra fjölmiðla að Arnór Atlason aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins væri í viðræðum við danska handknattleikssambandið um að taka við sem aðstoðarþjálfari danska landsliðsins.

,,Arnór Atlason aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins og þjálfari TTH Holstebro er samkvæmt okkar heimildum orðaður við aðstoðarþjálfarastöðuna hjá danska landsliðinu. Nikolaj Jacobsen vill fá hann í sitt þjálfarateymi. Þetta er viðurkenning úr hæstu hæðum að vera orðaður við besta landslið í heiminum. Við getum sagt ykkur frá því að við sendum línu á Arnór og hann vildi ekki tjá sig um þetta við okkur. Þar sem er reykur, þar er eldur," sagði Stymmi klippari í nýjasta þætti Handkastsins.

VERÐUR ARNÓR ATLA AÐSTOÐARÞJÁLFARI DANSKA LANDSLIÐSINS?

,,Þetta kemur ekkert brjálæðislega mikið á óvart miðað við virðinguna sem Arnór hefur í Danmörku. Miðað við það sem hann hefur gert þá kemur þetta ekkert svakalega mikið á óvart í ljósi þess að Danirnir eru að leita af aðstoðarþjálfara. Ég ímynda mér að þeir séu að reyna finna einhvern sem er öflugur. Arnór gæti verið frábært fit inn í þetta aðstoðarþjálfarastarf," sagði Kristinn Björgúlfsson gestur Handkastsins í Rapyd-stúdíóinu í gær.

Henrik Kronborg sem er í dag aðstoðarþjálfari Álaborgar hefur ákveðið að hætta í starfi eftir langan og farsælan feril hjá danska handknattleikssambandinu. Hann hefur starfað í yfir 20 ár innan danska handknattleikssambandsins og tekið þátt í allt að 14 stórmótum með landsliðinu. 

,,Þetta þýðir þá að aðstoðarþjálfara staðan hjá íslenska karla landsliðinu er laus. HSÍ hefur ekki endursamið við Snorra Stein en maður vonar að það sé bara tímaspursmál hvenær gengið verður frá því," sagði Stymmi klippari meðal annars.

Samkvæmt heimildum Handkastsins strandar samningaviðræður HSÍ við Snorra Stein vegna stöðu Arnórs Atlasonar en Snorri Steinn hefur frá fyrsta degi lagt mikla áherslu á að hann vilji halda Arnóri Atlasyni í þjálfarateymi sínu.

Eins og fyrr segir þá hafði Handkastið samband við Arnór Atlason þjálfara TTH Holstebro í gærkvöldi og hann vildi ekki tjá sig um þann orðróm um að hann væri í viðræðum við danska handknattleikssambandið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top