Handknattleikskonan Hafdís Shizuka Iura hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Þetta tilkynnir hún á Instagram reikningi sínum. Hafdís er fædd 1994 og verður því 32 ára á árinu. Leikur hún yfirleitt í stöðu leikstjórnanda en getur leyst allar stöður fyrir utan. Á Instagram reikningi sínum er hún með tilkynningu í léttum tón eins og henni einni er lagið. "Þúsund og þrjár þakkir fyrir mig Handbolti. Enn eitt áfallið fyrir handboltasamfélagið en svona er gangur lífsins. Eftir æðisleg (svona í heild) 25 ár og mörgum vinum og óvinum seinna er kominn tími á eitthvað annað skemmtilegt" Hafdís er uppalin í Fram og var lengi í herbúðum félagsins. Var hún einnig í yngri landsliðum Íslands lengi vel. Auk þess hefur hún leikið með Fylki, HK og Víking. Hjá Víking hefur hún verið síðan hún gekk í raðir liðsins vorið 2022 og spilað þar stórt og veigamikið hlutverk. Meiðsli hafa sett strik í reikninginn á þessu tímabili hjá henni og er það stærsta ástæðan fyrir því að hún ákveður að leggja skóna á hilluna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.