Haukur Ingi í Fram

Fram tilkynntu rétt í þessu að Haukur Ingi Hauksson gangi til liðs við FRAM á nýju tímabili.
Í tilkynningunni segir að Haukur Ingi sé gríðarlega öflug skytta sem hefur bætt sig ár frá ári eftir að hann fór að leika fyrst með Olísdeildarliði HK.

Haukur Ingi þekkir nokkra Frammara vel frá árum sínum með unglingalandsliðinu, sem og Einar Jónsson þjálfara FRAM sem þjálfaði unglingalandsliðið með Heimi Ríkarðssyni á sínum tíma.

"Haukur Ingi passar vel inn í hugmyndafræði okkar að vera með unga duglega stráka, sem eru tilbúnir að leggja sig fram á hverjum degi til að verða betri leikmenn, bæði fyrir sig og FRAM. Ég er mjög spenntur að vinna með honum áfram og hjálpa honum að þróa sinn leik, jafnt í vörn og sókn" sagði Einar Jónsson.

Haukur er því annar leikmaðurinn sem yfirgefur HK eftir tímabilið en Handkastið greindi frá því í gær að Ágúst Guðmundsson væri búinn að semja við FH. Þá hefur Sigurður Jeffersson verið sterklega orðaður við Hauka.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top