

ÍBV er komið í sumarfrí eftir að hafa tapað 2-0 í einvígi gegn KA í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Um er að ræða annað tímabilið í röð sem ÍBV tapar 2-0 í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins en liðið tapaði einnig gegn Aftureldingu í sömu umferð á síðustu leiktíð. ÍBV tapaði fyrri leik liðanna í tvíframlengdum leik á heimavelli og tapaði síðan á síðustu sekúndunni í seinni leiknum fyrir norðan. Daníel Þór Ingason var fenginn til liðs við ÍBV í sumar eftir dvöl erlendis í atvinnumennsku síðustu ár. Rætt var um hans frammistöðu í ÍBV búningnum á þessu tímabili í nýjasta þætti Handkastsins. ,,Danni Inga fer í kanínuhopp í vetur og meiðist á öxl. En ekki það, þetta er ekki maðurinn sem ÍBV bjóst við að vera fá þegar þeir fengu hann úr atvinnumennsku í vor. Spilamennska hans í vetur hefur verið mikil vonbrigði," sagði Stymmi klippari áður en Kristinn Björgúlfsson gestur þáttarins tók undir orð Klipparans. ,,Já ég held að það sé alveg hægt að segja það. Hann hefur einfaldlega verið lélegur og ekki staðið fyrir því sem hann átti að standa fyrir. Ég held að hann sé sennilega fyrsti maðurinn til að viðurkenna það." Í fyrri leik ÍBV og KA skoraði Daníel Þór þrjú mörk í níu tilraunum í tvíframlengdum leik og í leiknum á Akureyri skoraði hann einungis eitt mark en það mark kom á 58. mínútu leiksins er hann jafnaði metin í 24-24. KA vann leikinn 25-24.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.