Er Erlingur að hætta með ÍBV?
Sævar Jónasson

ÍBV er komið í sumarfrí eftir 2-0 tap gegn KA í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins um helgina. Annað tímabilið í röð er ÍBV dottið út í 8-liða úrslitum.

Erlingur Richardsson tók við liði ÍBV á nýjan leik fyrir tímabilið og uppskeran 4.sæti í deild, liðið komst ekki í Final4 í bikarnum og vann ekki leik í úrslitakeppninni. Rætt var um stöðu Erlings í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins.

,,Mig langar að ræða aðeins leikstjórnina á bekk Eyjamanna. Það voru tveir ef ekki þrír sem sendu á mig um það hvað væri að eiga sér stað á bekknum í leiknum. Erlingur Richardsson, þjálfari ÍBV og einn af okkar reyndustu þjálfurum hann var eins og starfsmaður C á varamannabekk ÍBV, sagði ekki orð. Sigurður Bragason stýrði í rauninni öllu í leikhléum og allt. Erlingur stóð bara eins og hann væri mállaus. Er þetta ekki frekar einkennilegt að aðalþjálfari liðsins hafi ekkert fram að færa í þessum leikhléum eða er hann búinn að láta Sigga vita af öllu áður en leikhléið fer í gang? Fyrir okkur heima í stofu virkaði hann eins og áhugalaus," sagði Stymmi klippari áður en gestur þáttarins, Kristinn Björgúlfsson tók við.

,,Það er allavegana ekki þannig að Erlingur viti ekkert á bekknum. Ég er með vinkil á þetta að Erlingur sé frekar að þjálfa Sigga Braga og Bergvin á bekknum til að taka við liðinu. Ég hef ekkert fyrir mér í þessu. Það lítur þannig út fyrir mér að hann sé mögulega að hætta með liðið. Ef hann er að hætta með liðið og það sé rétt tilgáta, þá er hann að nýta þetta til að láta Sigga taka stjórnina því það væri líklegast að hann myndi taka við. Þetta er það eina sem mér dettur í hug.”

Stymmi benti á viðtal við Erling eftir tapið gegn KA í fyrri leik liðanna þar sem honum fannst ummæli Erlings vekja upp spurningar.

,,Viðtalið við hann við Morgunblaðið þar sem hann fær rautt spjald og hann er spurður út í gang leiksins og þá svarar hann að hann hafi séð voða lítið af leiknum eftir að hann fékk rautt spjald. Hann var virkilega ólíkur sjálfum sér og þeir menn sem ég talaði við í dag, segja að hann hafi í raun verið svona eftir einhvern tapleik gegn FH í vetur. Verið eitthvað hálf ólíkur sjálfum sér. Eyjamenn mega ekkert við því að missa hann úr þjálfarateyminu. Þetta er einn af topp tveimur bestu þjálfurum á landinu.”

Frekari umræðu um Erling og ÍBV má hlusta á, í nýjasta þætti Handkastsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top