Deildarkeppninni er lokið í flestum deildum Norðurlandanna og nú þegar er úrslitakeppnin farin af stað í kvennadeildinni í Svíþjóð. Íslendingaliðin Sävehof og Skara eru bæði komin í forystu í sínum einvígum eftir sigra á heimavelli. Sävehof tók á móti Skuru í kvöld í Partille Arena en leikurinn var mun jafnari miðað við að þarna voru deiildarmeistararnir að mæta liðinu í áttunda sæti. En Sävehof hafði þó betur að lokum, 26-23. Elín Klara Þorkelsdóttir átti erfitt uppdráttar aldrei þessu vant í kvöld en hún skoraði þrjú mörk úr tíu skotum og klikkað eina vítinu sem hún tók og gaf einnig tvær stoðsendingar. Annar leikur liðanna fer fram á fimmtudagskvöldið á heimavelli Skuru. Skara hóf sitt einvígi í gærkvöldi en þá vann liðið mjög öruggan sigur á VästeråsIrsta, 32-22. Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði þrjú mörk úr fimm skotum og gaf tvær stoðsendingar. Næsti leikur liðanna fer fram í Västerås á föstudaginn langa. Úrslit liðanna: Sävehof 26-23 Skuru Skara 32-22 VästeråsIrsta

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.