Með rifinn liðþófa – Bíður eftir myndatöku
(Þorgils Garðar Gunnþórsson)

Vinstri hornamaðurinn í liði Fjölnis hann Viktor Berg Grétarsson hefur ekki verið í hóp hjá Fjölni í síðustu 2 leikjum á móti Stjörnunni.

Handkastið fór á stúfana og fékk það staðfest frá Viktori Berg að hann verður ekki með í oddaleiknum og heldur ekki ef Fjölnir fer í úrslitaeinvígið í umspilinu.

"Tímabilinu er lokið. Er með rifinn liðþófa. Bíð eftir myndatöku" sagði Viktor Berg.

Handkastið sendir bestu batakveðjur á Viktor Berg Grétarsson.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top