Sjáðu dramatíkina á Ísafirði – Ótrúlegar senur
Eyjólfur Garðarsson

Það voru ótrúlegar senur á Ísafirði í kvöld þegar Hörður tryggði sér í úrslit umspilsins um sæti í Olís-deild karla eftir sigur á Gróttu í tvíframlengdum leik.

Hörður sem endaði í 5.sæti Grill66-deildarinnar með 24 stig sló Gróttu út í undanúrslitum umspilsins 2-0 en Grótta endaði í 2.sæti deildarinnar með jafn mörg stig og Víkingur sem fór beint upp. Það skýrist á laugardaginn hvort það verður Stjarnan eða Fjölnir sem mæta Herði í úrslitum umspilsins.

DRAMATÍSKUR SIGUR HARÐVERJA Í SPENNUTRYLLI – HÖRÐUR KOMNIR Í ÚRSLITAEINVÍGIÐ

Eftir venjulegan leiktíma í kvöld var staðan jöfn 27-27 og því þurfti að framlengja leikinn.

Í fyrri framlengingunni leit allt út fyrir að Grótta myndi fara með sigur úr bítum en þá var Hörður einu marki undir þegar leiktíminn var liðinn en átti fríkast eftir. Guilherme Carmignoli De Andrade gerði sér hinsvegar lítið fyrir og skoraði beint úr aukakasti og jafnaði metin.

Hér má sjá aukakastið hjá Guilherme:

Það var ekki minni spennan undir lok seinni framlengingarinnar en Sæþór Atlason jafnaði metin fyrir Gróttu nokkrum sekúndum fyrir leikslok. Hörður fékk hinsvegar tækifæri til að skora sigurmarkið og það gerðu þeir sekúndu fyrir leikslok með marki frá Jhonatan C. R. Dos Santos.

Lokaandartök leiksins má sjá hér:

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top