Meistaradeildin: Spennutryllir í Danmörku og þægilegur sigur Veszprém
(Photo by Thomas COEX / AFP)

Tveir leikir fóru fram í útsláttarkeppni Meistardeildar Evrópu í kvöld þegar Vesprém fengu PSG í heimsókn og Nantes unnu GOG í algjörum spennutrylli.

One Veszprém - PSG 32-24 (15-9)
Veszprém unnu nokkuð þægilegan sigur á PSG í fyrri leik liðanna um sæti í 8-liða úrslitum keppninnar. Hugo Descat var allt í öllu hjá ungverska liðinu með 10 mörk og Kamil Syprzak var atkvæðamestur hjá PSG með 8 mörk.

Liðin munu svo mætast öðru sinni 9. apríl og sigurvegarinn úr einvíginu mætir Fucshe Berlin í 8-liða úrslitunum.

GOG - HBC Nantes 33-34 (19-16)
HBC Nantes stálu fyrirsögnunum eftir ótrúlegar lokamínútur en liðið var 33-31 undir þegar mínúta var eftir af leiknum og GOG voru með boltann. GOG tapar boltanum tvívegis á lokakaflanum og Aymeric Minne skoraði á síðustu sekúndu leiksins til þess að innsigla 34-33 sigur. Frederik Bjerre var markahæstur í liði GOG með 11 mörk og Nicolas Tournat og Julien Bos skorðu 7 mörk hvor fyrir Nantes.

Liðin mætast svo aftur 8. apríl en sigurvegarinn úr einvíginu mætir Barca í 8-liða úrslitunum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top