Ungir og uppaldir Ísfirðingar vekja athygli

Lið Harðar Ísafirði vann í gær ótrúlegan sigur frá Gróttu í mögnuðum spennutrylli eins og áður hefur komið fram. Unnu þeir einvígið 2-0 og mæta annaðhvort Fjölni eða Stjörnunni í úrslitaeinvíginu. Skýrist það á laugardaginn þegar Fjölnir og Stjarnan mætast í oddaleik.

Í deildarkeppninni lentu Harðverjar í 5. sæti með 11 sigra, 2 jafntefli og 9 töp í 22 leikjum. Spilamennska þeirra var stigvaxandi og tóku þeir framförum jafnt og þétt. Þó gat verið munur á frammistöðu þeirra á heimavelli og útivelli og vantaði liðinu á köflum stöðugleika.

Markahæstu leikmenn liðsins í vetur voru þeir Endijs Kusners með 141 mörk, Jose Esteves Lopes Neto með 132 mörk og Shuto Takenaka með 98 mörk.

Hjá Herði hafa útlendingar skipað lykilhlutverk síðustu ár enda hefur oft reynst erfitt að sækja Íslendinga í þennan fallega 2700 manna bæ sem Ísafjörður er. Því hafa heimamenn brugðið á það ráð að ná í fjölmarga útlendinga. Sumir hafa stoppað stutt við en aðrir verið lengur. Sumir komið með lítið að borðinu en aðrir stimplað sig rækilega inn. Eins og gengur. En þessir leikmenn hafa litað og skreytt samfélagið á Ísafirði og ekki síður handboltalífið á Íslandi.

Nú í vetur er hins vegar áberandi hvað margir ungir og uppaldir Ísfirðingar eru að koma upp og spila hlutverk í liðinu. Strákar sem hafa staðið sig vel í yngri flokkum á síðustu árum og beðið hefur verið eftir.

Stefán Freyr Jónsson markmaður, fæddur árið 2004 varði til að mynda 19 skot í leiknum í gær. Pétur Þór Jónsson, yngri bróðir Stefáns Freys er fæddur 2008, línumaður og tekur líka til sín í vörninni. Axel Vilji Bragason er fæddur 2009 og lék í stöðu leikstjórnanda nær allan leikinn ásamt því að berja frá sér í vörninni. Hermann Alexander Hákonarson, fæddur 2009, markvörður sem varði nokkra góða bolta í fyrsta leiknum. Einnig hafa Hilmir Freyr Norðfjörð fæddur 2010 og Kristján Hrafn Kristjánsson fæddur 2008 komið við sögu í vetur hjá liðinu.

Það er því ljóst að Ísfirðingar þurfa því ekki að kvíða framtíðinni á næstu árum með þessa stráka innanborðs.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top