
HBC Nantes stálu fyrirsögnunum eftir ótrúlegar lokamínútur gegn GOG í vikunni í Meistaradeild Evrópu en liðið var 33-31 undir þegar mínúta var eftir af leiknum og GOG voru með boltann. Liðsmenn Nantes gerðu sér lítið fyrir og skoruðu þrjú mörk á 50 sekúndum og unnu leikinn með einu marki 33-34 og fara með eins marks forskot inn í seinni leik liðanna sem fer fram í Frakklandi í næstu viku. Sigurvegarinn úr einvíginu mætir Viktori Gísla Hallgrímssyni og félögum í Barca í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. GOG tapaði boltanum tvívegis á lokakaflanum og Aymeric Minne skoraði á síðustu sekúndu leiksins til þess að innsigla 34-33 sigur. Frederik Bjerre var markahæstur í liði GOG með 11 mörk og Nicolas Tournat og Julien Bos skorðu 7 mörk hvor fyrir Nantes. Hér að neðan er hægt að sjá tvö myndskeið af lokamínútum leiksins sem eru ótrúlegar og eitthvað sem maður sér ekki á hverjum degi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.