Í þætti Handkastsins í síðustu viku veltu menn því fyrir sér hvort Erlingur Richardsson þjálfari ÍBV væri að hætta með liðið í sumar. En ÍBV féll úr leik í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins annað árið í röð og nú gegn KA 2-0. Í nýjasta þætti Handkastsins sagði Stymmi klippari hinsvegar frá því að hann hafi fengið skeytasendingar frá Vestmannaeyjum þar sem þar var fullyrt að Erlingur væri alls ekki að hætta með liðið. ,,Við vorum að velta því fyrir okkur í síðasta þætti hvort Erlingur Richardsson þjálfari ÍBV væri að hætta með liðið. Okkur fannst hann ólíkur sjálfum sér á hliðarlínunni en við fengum skeytasendingu úr Vestmannaeyjum að það væri ekki neitt svoleiðis á döfinni. Erlingur og Sigurður Bragason verða áfram með ÍBV liðið á næsta tímabili og þeir eru byrjaðir að undirbúa næsta tímabil. Þetta voru meira vangaveltur heldur en einhverjar blammeringar," sagði Stymmi klippari. Einar Ingi Hrafnsson sem var gestur í Handkastinu segir að þessar vangaveltur í síðasta þætti hafi alveg átt rétt á sér. ,,ÍBV hefur verið ólíkir sjálfum sér finnst mér undanfarin tvö ár. Þetta eru hvatningarorð til Eyjamanna að leita aftur í bad boy Vestmannaeyjar og þá þarf að vera meiri orka bæði inn á vellinum og á bekknum. Það er ólíkt Erlingi að vera eins rólegur og hann var í þessu einvígi gegn KA. Það er mjög eðlilegt að velta því fyrir sér hvort Erlingur væri að hætta en það er mjög gott að heyra að þeir ætli að halda áfram. Þeir verða sennilega í Fitness sport í sumar og finna orkuna,” sagði Einar Ingi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.