Sävehof komst í 2-0 forystu í einvígi sínu gegn Skuru í úrslitakeppninni í Svíþjóð í gær. Sävehof vann nokkuð þægilegan sigur níu marka sigur 24-33. Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði sex mörk úr tíu skotum, þar af voru fjögur úr vítum. Í fyrsta leik liðanna vann Sävehof þriggja marka sigur 26-23 en vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér sæti í undanúrslitum. Í fyrsta leiknum gerði Elín Klara sér lítið fyrir og skoraði tvö sirkusmörk á fimm mínútna millibili undir lok leiksins. Hægt er að sjá sirkusmörkin í myndskeiðinu hér að neðan sem sænska félagið birti á samfélagsmiðlum sínum. Framundan er landsleikir hjá íslenska landsliðinu þar sem Elín Klara verður í eldlínunni. Ísland mætir fyrst Færeyjum og fær síðan Portúgal í heimsókn á Ásvelli um næstu helgi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.